Um Drangey

Verslunin Drangey á sér rúmlega 90 ára sögu en hún var opnuð árið 1934 og var fyrst rekin sem matvöruverslun á Grettisgötu. Árið 1946 flutti verslunin á Laugaveg þar sem hún var staðsett næstu áratugina. Á þeim tíma fékkst þar aðallega vefnaðarvara og síðar leðurvörur, en verslunin er einmitt þekkt í dag fyrir vandaðar leðurvörur svo sem töskur, hanska og aðra fylgihluti. Drangey rak verslun í Smáralind frá opnun hússins árið 2001 og lokaði verslun sinni á Laugavegi fáeinum árum síðar. Versluninni í Smáralind var lokað í heimsfaraldrinum árið 2020 og reksturinn færður alfarið yfir á netið, þar sem hún hefur verið starfrækt síðan. Nýir eigendur tóku við versluninni árið 2025.