Skilmálar viðskipta í vefverslun

Fyrirtæki
Drangey ehf
Kt. 500169-6219
VSK nr. 11821
Hamrakór 9 (skrifstofa)
203 Kópavogi
s. 551 3311 & 898 0648
drangey@drangey.is

Almennt
Vinsamlega athugið fyrirvara um prentvillur eða villur á verði sem fyrirtækið áskilur sér rétt til að breyta hverju sinni. Drangey ehf áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án nokkurs sérstaks fyrirvara.

Ferlið

Kaupandi velur vörur til kaups á vef seljanda. Eftir pöntun smellir hann á greiðsluhnapp sem flytur hann á greiðslusíðu Borgunar / Netgíró, þar birtast upplýsingar um seljandan og vöruna sem keypt er auk upphæðar. Borgun tekur á móti öllum helstu greiðslukortum. Einnig er hægt að millifæra í banka, ef sú leið er valin færðu sendan tölvupóst með upplýsingum um reikningsnúmer og kennitölu fyrirtækisins. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 2ja daga telst pöntun ógild. Nauðsynlegt er að staðfesta millifærslu með því að senda kvittun úr heimabanka á drangey@drangey.is með pöntunarnúmeri sem skýringu.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar 2-6 virkum dögum eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband með tölvupósti. Öllum pöntunum er dreift af Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu og sendingarkostnað vörunnar. Drangey ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Við bjóðum upp á frían sendingarkostnað innanlands á næsta pósthús af öllum vörum nema innkaupakerrum, tölvu/skjalatöskum og ferðatöskum, þá gildir verðskrá Póstsins sem leggst við vöruverð. Ef verslað er fyrir kr. 15.000 eða meira er frí heimsending á Höfuðborgarsvæðinu. Það tekur 3-6 virka daga að fá vöruna í hendur eftir að pöntun er gerð og greiðsla hefur farið fram. Vinsamlegast hafið samband á drangey@drangey.is ef eitthvað er óljóst.

Skilaréttur og endurgreiðslustefna
Vörum er hægt að skila innan 14 daga frá afhendingu og fá skipt í aðrar vörur að andvirði sömu upphæðar, fá inneignarnótu eða fá endurgreitt. Algjört skilyrði er að vörum sé skilað í upprunalegum umbúðum, með merkimiðum ef þeir eru til staðar og í sama ástandi og varan fyrirfinnst í netverslun. Ef vöru er skilað án þess að uppfylla þessi skilyrði áskilur fyrirtækið sér rétt til að hafna vöruskilunum.
Sé vara gölluð er hægt að tilkynna það á drangey@drangey.is (sendið póst áður en vara er endursend) og senda vöruna tilbaka innan 14 daga.
Ef vara er ekki til á lager er endurgreiðsla framkvæmd.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Öll verð á vefsíðunni eru í íslenskum krónum / ISK og með VSK.

Skattar og gjöld
Öll virðisaukaskyld verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Úrlausn vafamála
Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa hjá Neytendastofu. Sem loka úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Lög og varnarþing Drangey ehf er Héraðsdómur Reykjaness.

Notkun vefsíðu
Þessi vefsíða notar kökur (cookies) til að gera reynslu þína betri. Með því að halda áfram notkun vefsins staðfestir þú samþykki þitt fyrir því, en þú getur annars sagt þig frá þess konar notkun.